1k
19k
2k
Í það minnsta fimm háværar sprengingar hafa heyrst í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, í morgun. Fleiri borgir eru sagðar verða fyrir sprengjuárásum. Fyrstu sprengingarnar urðu upp úr klukkan fimm á íslenskum tíma, eftir að loftvarnarflautur ómuðu um höfuðborgina.
Norðanstormur gengur yfir landið í dag og rauðar veðurviðvaranir taka gildi þegar líður á morguninn á Norður- og Austurlandi. Þar er spáð mjög mikilli úrkomu, slyddu eða snjókomu. Því gæti hlaðist á raflínur og orðið rafmagnslaust. Fólk er beðið um að halda sig heima í dag.