Samstarfsvettvangur stjórnvalda

Samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir verður stofnaður í dag, þriðjudaginn 28. maí kl. 11.00 í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Að samstarfsvettvanginum standa forsætisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Orkuklasinn, Viðskiptaráð Íslands, Íslandsstofa og fjöldi fyrirtækja.

avatar Fréttastofa RÚV